Mat og greining á sértækum námsörðugleikum, svo sem í lestri (lesblinda/dyslexia) og stærðfræði (stærðfræðiblinda/dyscalculia)
Ég býð upp á taugasálfræðilegt mat fyrir börn, unglinga og fullorðna, þar sem ég legg fyrir greindarpróf og fleiri taugasálfræðileg próf, kortlegg styrkleika og veikleika í þroskamynstri og athuga lestur, skrift, stafsetningu og stærðfræði með tilliti til sértækra námsörðugleika. Einnig er ég með spurningalista um athygli, einbeitingu og úthald, aðlögun og líðan.
Ef óskað er eftir, legg ég fyrir ADHD skimunarlista og ræði líkur þess hvort um athyglisbrest eða ofvirkni sé að ræða og hvað sé til ráða til að draga úr slíkum einkennum.
Prófunin tekur tvö skipti, upp undir 90 mínútur í senn. Síðan er viðtal um niðurstöður og ráðgjöf, oft um 90 mínútur.
Greining á sértækum námsörðugleikum byggir á alþjóðlegum greiningarviðmiðum ICD-10 og DSM-IV. Hugað er að fylgikvillum og mismunagreiningu. Vísað er til annarra sérfræðinga eftir þörfum.
Eftir skilaviðtal skrifa ég skýrslu um niðurstöður og ráðgjöf og sendi viðkomandi eða foreldrum, þegar um barn er að ræða. Skýrsluna er t.d. hægt að nota í samskiptum við skóla. Einnig skrifa ég vottorð á Hljóðbókasafn og vottorð á ensku eftir þörfum.
Yfirleitt er ekki meira en 1-2 vikna bið eftir athugun. Tímarnir eru yfirleitt eftir hádegi á virkum dögum. Sálfræðistofan er í Hamraborg 10, 3. hæð, í miðbæ Kópavogs, gengið inn sunnan megin við hliðina á innganginum í kaffihúsið Te og kaffi.